Vélmenni

Vöruframboð

Vélmenni fyrir þrif, flutninga og þjónustu.

Við veljum lausn út frá rýminu, umferðinni og vinnunni sem þarf að verða fyrirsjáanlegri. Allt frá gólfaþrifum og sópun yfir í afhendingar og vöruhúsaflutninga.

Pudu vélmenni í vöruframboði Gengils

Lausnir

Fimm flokkar, ein rekstrarhugsun.

Hver lausn er hugsuð sem hluti af rekstri: uppsetning, þjálfun, mælingar, þjónusta og rekstrarleiga.

ÞrifMælaborðStór rými

Ryksugu- og skúringarvélmenni

Sjálfvirk ryksugu- og skúringarvélmenni fyrir atvinnuhúsnæði með kortlagningu, skynjurum, sjálfvirkri hleðslu og áframhaldi verkefna eftir hleðslu.

  • Þrif samkvæmt tímaáætlun
  • Skýrslugerð um þrif og afköst
  • Áfylling og losun eftir búnaði
  • Afköst frá 2000 m2 á klukkustund
Frá 149.000 kr. á mánuði án vsk.
CC1 Pro ræstingarvélmenni
SópunIðnaður24/7

Ryksugu- og sópvélmenni

Sjálfvirk sópvélmenni fyrir þurrhreinsun, framleiðslu, bílastæðakjallara, viðburðahallir og önnur svæði þar sem reglubundin þrif þurfa að ganga án tafar.

  • Stór sorpílát fyrir langar lotur
  • AI myndgreining fyrir markviss þrif
  • Samþætting við rekstrarkerfi
  • Hentar mikilli umferð
Frá 99.000 kr. á mánuði án vsk.
MT1 sópvélmenni í iðnaðarumhverfi
ÞjónustaAfhendingarGestir

Þjónustu- og tilkynningavélmenni

Vélmenni fyrir afhendingu, flutning og framreiðslu. Þau létta undir með starfsfólki, hraða þjónustu og gera upplifun gesta sýnilegri.

  • Fjölhæðabakkar
  • Verkefni eftir tímaáætlun eða þörf
  • Hentar hótelum, mötuneytum og skrifstofum
  • Mælaborð um notkun og afköst
Frá 79.000 kr. á mánuði án vsk.
Þjónustuvélmenni í notkun
ÞrifIðnaðurPUDU BG1

PUDU BG1 stór ræsti- og skúringarvélmenni

AI-native stór skúringar- og þurrkvél fyrir víðfeðm atvinnurými þar sem þrif þurfa að vera regluleg, nákvæm og sjálfstýrð yfir langar lotur.

  • Sópar og skúrar í einni ferð
  • Útdraganleg kantþrif fyrir veggi og horn
  • 3D skynjun og AI stýring þrifa
  • Hentar vöruhúsum, iðnaði og stórum gólfum
Verð eftir útfærslu og rýmisþörf.
PUDU BG1 stór skúringarvélmenni
FlutningarIðnaður600 kg

Vöruhúsavélmenni

Sjálfvirk flutningsvélmenni fyrir atvinnuhúsnæði og iðnaðarumhverfi. Þau flytja búnað og vörur á milli svæða, fylgja starfsmanni eða fara á skilgreinda áfangastaði.

  • Kortlagning og sjálfvirkur vegvísir
  • Sjálfvirk hleðsla
  • Minna álag og færri mistök
  • Burðargeta allt að 600 kg
Frá 149.000 kr. á mánuði án vsk.
Pudu T600 vöruhúsavélmenni

Óviss um hvaða lausn passar?

Við byrjum á rýminu og verkefnunum. Eftir stutta skoðun má yfirleitt sjá hvaða flokkur skilar skjótustum ávinningi.

Bóka þarfagreiningu