Um okkur

Um Gengil

Við hjálpum fyrirtækjum að koma vélmennum í raunverulegan rekstur.

Gengill sameinar rekstrarþekkingu, tæknilega innleiðingu og þjónustu til að sjálfvirkni skili sér í daglegum verkefnum, ekki bara góðri hugmynd.

Ísland + PuduSölu- og þjónustuaðili með áherslu á hagnýta innleiðingu, mælanlegan ávinning og áframhaldandi stuðning.
Pudu þjónustuvélmenni í íslensku þjónustuumhverfi

Hver erum við?

Íslenskt fyrirtæki með fókus á notkun, ekki nýjungaglamur.

Gengill ehf. sérhæfir sig í innleiðingu og þjónustu við snjallar tæknilausnir fyrir atvinnuhúsnæði á Íslandi.

Fyrirtækið er leitt af Arnóri Hreiðarssyni, fyrirtækjaeiganda og ráðgjafa með víðtæka reynslu af rekstri, stefnumótun og tækniinnleiðingu. Áherslan er á hagnýtar lausnir sem bæta daglegan rekstur, auka skilvirkni og skapa mælanlegt virði.

Sem samstarfsaðili Pudu bjóðum við þjónustuvélmenni og sjálfvirknilausnir fyrir skrifstofuhúsnæði, verslanir, hótel, veitingastaði, iðnaðarrými og aðrar starfsstöðvar.

Hvernig við vinnum

Heildstæð þjónusta frá fyrstu skoðun til daglegs stuðnings.

Ráðgjöf og val

Við skoðum verkefnið, rýmið og markmiðin áður en tækið er valið.

Uppsetning og þjálfun

Kortlagning, stillingar og þjálfun tryggja að lausnin verði hluti af verklaginu.

Áframhaldandi þjónusta

Við fylgjum notkuninni eftir með stuðningi, viðhaldi og ráðgjöf þegar reksturinn þróast.

Gengill ehf.

Eyjarslóð 9
101 Reykjavík
Ísland

Opnunartímar

Mánudaga til föstudaga
10:00–15:00

Hafðu samband

gengill@gengill.is
+354 615 1907