PUDU GT5 | Afkastamikill sláttur stórra grasflata | Gengill

PUDU GT-serían / Gengill

PUDU GT5 - Afkastamikill sláttur stórra grasflata

GT5 sameinar breiðan slátt, söfnun og sjálfvirka losun. Hannað fyrir reglulegan slátt víðáttumikilla grasflata og ferðir milli skilgreindra svæða.

PUDU GT5 sláttuvélmenni

Notkunarsvið

Rétt tæki fyrir rétt svæði.

Sveitarfélög, stórar lóðir og græn svæði við golfvelli og fótboltavelli. Val á tæki miðast við flatarmál og kröfur um sláttuhæð.

Helstu eiginleikar

  • Breiður sláttur með söfnun
  • Sjálfvirk losun og áframhald verkefnis
  • Uppgefin afköst allt að 8.000 m²/klst.
  • Kortlagðar leiðir milli grasflata

Helstu tæknitölur

Sláttubreidd152 cm
Sláttuhæð26-152 mm
Notkunartími8-10 klst.
Svæði á fullri hleðsluAllt að 65.000 m²

Uppgefnar tölur frá PUDU GT5. Raunafköst fara eftir aðstæðum og notkun.

Uppsetning og þjónusta

Undirbúið fyrir sláttutímabilið.

1. Meta svæðið

Við förum yfir flatarmál, sláttuhæð, halla, aðgengi og fyrirhugaða notkun.

2. Stillt að rekstrinum

Leiðir, vinnusvæði, hleðsla, losun og þjálfun starfsfólks eru skipulögð með rekstraraðila.

3. Þjónusta yfir tímabilið

Við skilgreinum stuðning og viðhald eftir notkun. Fyrirkomulag utan sláttutímabilsins er hluti af tilboði.

Lausn fyrir þinn rekstur

Rekstrarleiga og sala í boði.

Tilboð miðast við tæki, búnað, þjónustuþörf og fyrirhugaða notkun yfir sláttutímabilið. Hafðu samband til að óska eftir tilboði fyrir þinn rekstur.

Óska eftir tilboði

Spurningar um sjálfvirkan slátt

Hvaða GT-vélmenni hentar golfvelli eða fótboltavelli?

Það fer eftir flatarmáli, sláttuhæð og gæðakröfum. GT3 sameinar slátt og sópun, GT5 sinnir stórum grasflötum og GT7 býður nákvæman keflaslátt. Við metum einstaka vallarhluta með vallarstjóra; sama tæki hentar ekki sjálfkrafa öllum flötum golfvallar.

Er rekstrarleiga eða sala í boði?

Já, hvort tveggja er í boði fyrir GT-seríuna. Tilboð er gert út frá tæki, búnaði, þjónustuþörf og notkun yfir sláttutímabilið. Hafðu samband til að fá tillögu að útfærslu.

Hvernig er tekið tillit til sláttutímabilsins?

Við förum yfir upphaf og lok notkunar, sláttutíðni, álag og þjónustuþörf. Lengd og skilmálar rekstrarleigu eða kaupa, ásamt viðhaldi og geymslu utan tímabilsins, eru skilgreind í tilboði.

Geta tækin safnað grasi og farið milli svæða?

GT3 og GT5 bjóða söfnun, sjálfvirka losun og áframhald verkefnis. GT7 getur slegið með eða án söfnunar. Leiðir milli svæða, losunarstaður og aðgengi eru skilgreind við uppsetningu.

Hvernig eru halli, bleyta og umferð metin?

Við skoðum undirlag, halla, grasástand, umferð fólks og aðgengi með rekstraraðila. Vinnutímar, afmörkun og notkunarskilyrði miðast við tækið og leiðbeiningar framleiðanda. Raunafköst ráðast af aðstæðum á svæðinu.

Hvað þarf fyrir hleðslu og viðhald?

Meta þarf rafmagnsaðstöðu, hleðslustað, losun og aðgengi til þjónustu. Hleðslubúnaður, dagleg umhirða, viðhald sláttueininga og þjónustufyrirkomulag eru hluti af þarfagreiningu og tilboði.

Skoðaðu líka önnur GT-vélmenni

PUDU GT3 sláttuvélmenni

Sláttur og sópun í einu tæki

PUDU GT3

GT3 slær gras, safnar grasafskurði og getur sópað gönguleiðir með slátturhnífana óvirka. Lausn fyrir lóðir þar sem grasfletir og stígar mætast.

Skoða GT3
PUDU GT5 sláttuvélmenni

Afkastamikill sláttur stórra grasflata

PUDU GT5

GT5 sameinar breiðan slátt, söfnun og sjálfvirka losun. Hannað fyrir reglulegan slátt víðáttumikilla grasflata og ferðir milli skilgreindra svæða.

Skoða GT5
PUDU GT7 sláttuvélmenni

Nákvæmur keflasláttur fyrir vandaða grasfleti

PUDU GT7

GT7 er keflasláttuvélmenni með þremur sláttueiningum sem fylgja yfirborði, fjórhjóladrifi og stillanlegum sláttumynstrum. Fyrir verkefni þar sem jöfn sláttuhæð og áferð skipta miklu.

Skoða GT7