Pudu þjónustu- og ræstingarvélmenni í vöruframboði

Vélmenni | Þrif, flutningar og afhendingar fyrir atvinnuhúsnæði

Vöruframboð

Vélmenni fyrir þrif, flutninga og þjónustu.

Við veljum lausn út frá rýminu, umferðinni og vinnunni sem þarf að verða fyrirsjáanlegri. Gengill sér um þarfagreiningu, uppsetningu, þjálfun, rekstrarleigu og áframhaldandi þjónustu.

Pudu vélmenni í vöruframboði Gengils

Lausnir

Fimm flokkar, ein rekstrarhugsun.

Hver lausn er metin út frá notkun: hvar hún hentar, hvaða verkefni hún tekur yfir, hvaða rekstrarávinning hún skilar og hvernig Gengill styður við daglega notkun.

ÞrifMælaborðStór rými

Ryksugu- og skúringarvélmenni

Sjálfvirk ryksugu- og skúringarvélmenni fyrir atvinnuhúsnæði með kortlagningu, skynjurum, sjálfvirkri hleðslu og áframhaldi verkefna eftir hleðslu.

  • Þrif samkvæmt tímaáætlun
  • Skýrslugerð um þrif og afköst
  • Áfylling og losun eftir búnaði
  • Afköst frá 2000 m2 á klukkustund
Hentar fyrirHótel, skóla, skrifstofur, verslanir, heilbrigðisrými og sameiginleg svæði.
Helstu verkefniSkúrun, ryksugun, sópun og reglubundið viðhald á opnum gólfum.
RekstrarávinningurJafnari gæði, betri yfirsýn og minni tími í endurtekin gólfþrif.
Uppsetning og þjónustaKortlagning rýmis, þjálfun notenda, mælingar og viðhaldsstuðningur.
Frá 149.000 kr. á mánuði án vsk.Bóka vettvangsskoðun
CC1 Pro ræstingarvélmenni
SópunIðnaður24/7

Ryksugu- og sópvélmenni

Sjálfvirk sópvélmenni fyrir þurrhreinsun, framleiðslu, bílastæðakjallara, viðburðahallir og önnur svæði þar sem reglubundin þrif þurfa að ganga án tafar.

  • Stór sorpílát fyrir langar lotur
  • AI myndgreining fyrir markviss þrif
  • Samþætting við rekstrarkerfi
  • Hentar mikilli umferð
Hentar fyrirIðnað, vöruhús, bílastæðakjallara, verslunarrými og stór opin svæði.
Helstu verkefniSópun, ryksugun og þurrhreinsun þar sem ryk og rusl safnast reglulega.
RekstrarávinningurMinni handvinna á stórum flötum og betri festa í daglegu viðhaldi.
Uppsetning og þjónustaLeiðir, svæði, losun, hleðsla og þjónustutíðni stillt með rekstrinum.
Frá 99.000 kr. á mánuði án vsk.Bóka vettvangsskoðun
MT1 sópvélmenni í iðnaðarumhverfi
ÞjónustaAfhendingarGestir

Þjónustu- og tilkynningavélmenni

Vélmenni fyrir afhendingu, flutning og framreiðslu. Þau létta undir með starfsfólki, hraða þjónustu og gera upplifun gesta sýnilegri.

  • Fjölhæðabakkar
  • Verkefni eftir tímaáætlun eða þörf
  • Hentar hótelum, mötuneytum og skrifstofum
  • Mælaborð um notkun og afköst
Hentar fyrirHótel, veitingastaði, mötuneyti, skrifstofur, ráðstefnur og heilbrigðisrými.
Helstu verkefniFramreiðsla, afhending, söfnun, kynning og flutningur milli skilgreindra staða.
RekstrarávinningurMinna labb, sýnilegri þjónusta og meiri tími starfsfólks fyrir gesti.
Uppsetning og þjónustaVerkefni, áfangastaðir, skilaboð og notkunarreglur stillt með teyminu.
Frá 79.000 kr. á mánuði án vsk.Bóka vettvangsskoðun
Þjónustuvélmenni í notkun
ÞrifIðnaðurPUDU BG1

PUDU BG1 stór ræsti- og skúringarvélmenni

AI-native stór skúringar- og þurrkvél fyrir víðfeðm atvinnurými þar sem þrif þurfa að vera regluleg, nákvæm og sjálfstýrð yfir langar lotur.

  • Sópar og skúrar í einni ferð
  • Útdraganleg kantþrif fyrir veggi og horn
  • 3D skynjun og AI stýring þrifa
  • Hentar vöruhúsum, iðnaði og stórum gólfum
Hentar fyrirVöruhús, iðnaðargólf, stórar þjónustubyggingar og rými með miklu álagi.
Helstu verkefniStórfelld skúrun, þurrkun, sópun, kantþrif og langtíma lotur.
RekstrarávinningurMeiri afköst á stórum flötum og stöðugri gæði á svæðum sem erfitt er að manna.
Uppsetning og þjónustaRýmisgreining, aðgengi, vatnslosun, öryggi og þjónustustig skilgreint sérstaklega.
Verð eftir útfærslu og rýmisþörf.Bóka vettvangsskoðun
PUDU BG1 stór skúringarvélmenni
FlutningarIðnaður600 kg

Vöruhúsavélmenni

Sjálfvirk flutningsvélmenni fyrir atvinnuhúsnæði og iðnaðarumhverfi. Þau flytja búnað og vörur á milli svæða, fylgja starfsmanni eða fara á skilgreinda áfangastaði.

  • Kortlagning og sjálfvirkur vegvísir
  • Sjálfvirk hleðsla
  • Minna álag og færri mistök
  • Burðargeta allt að 600 kg
Hentar fyrirVöruhús, framleiðslu, lager, bakrými og endurtekin flutningsverkefni.
Helstu verkefniFlutningur milli stöðva, fylgd með starfsmanni og sjálfvirk afhending á áfangastað.
RekstrarávinningurMinna líkamlegt álag, færri tafir og fyrirsjáanlegri innanhússflutningar.
Uppsetning og þjónustaLeiðir, hleðsla, öryggi, áfangastaðir og rekstrarferlar eru kortlögð fyrir notkun.
Frá 149.000 kr. á mánuði án vsk.Bóka vettvangsskoðun
Pudu T600 vöruhúsavélmenni

Óviss um hvaða lausn passar?

Við byrjum á rýminu og verkefnunum. Eftir stutta vettvangsskoðun má yfirleitt sjá hvaða flokkur skilar skjótustum ávinningi.

Bóka vettvangsskoðun