PUDU GT-serían / Gengill
PUDU GT7 - Nákvæmur keflasláttur fyrir vandaða grasfleti
GT7 er keflasláttuvélmenni með þremur sláttueiningum sem fylgja yfirborði, fjórhjóladrifi og stillanlegum sláttumynstrum. Fyrir verkefni þar sem jöfn sláttuhæð og áferð skipta miklu.

Notkunarsvið
Rétt tæki fyrir rétt svæði.
Fótboltavellir með náttúrulegu grasi, brautir, teigar og valin svæði við flatir golfvalla. Ekki er hér um að ræða staðfestingu á slætti golfgrína. Hæfni fyrir einstaka vallarhluta er metin með vallarstjóra út frá sláttuhæð, undirlagi og gæðakröfum.
Helstu eiginleikar
- Þrjár sjálfstætt fljótandi keflasláttueiningar
- Stýring sláttustefnu og sláttumynstra
- Fjórhjóladrif og leiðsögn með RTK, LiDAR og myndavélum
- Val um slátt með eða án söfnunar, sjálfvirk losun og áframhald verkefnis
Helstu tæknitölur
| Sláttubreidd | Um 160 cm |
|---|---|
| Sláttuhæð | 5-50 mm |
| Notkunartími | Allt að 12 klst.* |
| Svæði á fullri hleðslu | Allt að 70.000 m²* |
Uppgefnar tölur frá PUDU GT7. Raunafköst fara eftir aðstæðum og notkun. *Hámarksnotkunartími og flatarmál GT7 miðast við slátt án söfnunar.
Uppsetning og þjónusta
Undirbúið fyrir sláttutímabilið.
1. Meta svæðið
Við förum yfir flatarmál, sláttuhæð, halla, aðgengi og fyrirhugaða notkun.
2. Stillt að rekstrinum
Leiðir, vinnusvæði, hleðsla, losun og þjálfun starfsfólks eru skipulögð með rekstraraðila.
3. Þjónusta yfir tímabilið
Við skilgreinum stuðning og viðhald eftir notkun. Fyrirkomulag utan sláttutímabilsins er hluti af tilboði.
Lausn fyrir þinn rekstur
Rekstrarleiga og sala í boði.
Tilboð miðast við tæki, búnað, þjónustuþörf og fyrirhugaða notkun yfir sláttutímabilið. Hafðu samband til að óska eftir tilboði fyrir þinn rekstur.
Óska eftir tilboðiSpurningar um sjálfvirkan slátt
Hvaða GT-vélmenni hentar golfvelli eða fótboltavelli?
Það fer eftir flatarmáli, sláttuhæð og gæðakröfum. GT3 sameinar slátt og sópun, GT5 sinnir stórum grasflötum og GT7 býður nákvæman keflaslátt. Við metum einstaka vallarhluta með vallarstjóra; sama tæki hentar ekki sjálfkrafa öllum flötum golfvallar.
Er rekstrarleiga eða sala í boði?
Já, hvort tveggja er í boði fyrir GT-seríuna. Tilboð er gert út frá tæki, búnaði, þjónustuþörf og notkun yfir sláttutímabilið. Hafðu samband til að fá tillögu að útfærslu.
Hvernig er tekið tillit til sláttutímabilsins?
Við förum yfir upphaf og lok notkunar, sláttutíðni, álag og þjónustuþörf. Lengd og skilmálar rekstrarleigu eða kaupa, ásamt viðhaldi og geymslu utan tímabilsins, eru skilgreind í tilboði.
Geta tækin safnað grasi og farið milli svæða?
GT3 og GT5 bjóða söfnun, sjálfvirka losun og áframhald verkefnis. GT7 getur slegið með eða án söfnunar. Leiðir milli svæða, losunarstaður og aðgengi eru skilgreind við uppsetningu.
Hvernig eru halli, bleyta og umferð metin?
Við skoðum undirlag, halla, grasástand, umferð fólks og aðgengi með rekstraraðila. Vinnutímar, afmörkun og notkunarskilyrði miðast við tækið og leiðbeiningar framleiðanda. Raunafköst ráðast af aðstæðum á svæðinu.
Hvað þarf fyrir hleðslu og viðhald?
Meta þarf rafmagnsaðstöðu, hleðslustað, losun og aðgengi til þjónustu. Hleðslubúnaður, dagleg umhirða, viðhald sláttueininga og þjónustufyrirkomulag eru hluti af þarfagreiningu og tilboði.


